Golfskúrinn
Vinsælustu síðurnar á blog.central
Islantilla 2006
30.06.2008 23:39:43 / grimurl

Golfskúrinn hættir. Allt á útsölu.

Nú er um að gera og koma i Golfskúrinn og gera góð kaup því ég ætla að hætta með þessa verslun og er því allt á útsölu.
Allt á að seljast!


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 10:32:18 / grimurl

Ótrúlegur!

Tiger Woods var að vinna 13. risamótið sitt á ferlinum, þegar hann vann PGA championsship mótið í kvöld.

Þessi drengur er alveg ótrúlegur og er ljóst að hann er sá besti kylfingur sem komið hefur á sjónarsviðið frá upphafi.

Það mætti benda á gömlu meistarana,Jack Nicklaus,Arnold Palmer,Ben Hogan,Sam Snead og fleiri og segja að þeir voru líka svona góðir, en ég held að sá samanburður sé ekki raunhæfur.

Nú eru miklu fleiri menn sem hafa atvinnu af því að spila golf og samkeppnin miklu harðari en hún var nokkurn tímann á árum áður.

Tiger Woods er greinilega gríðarlega vinsæll meðal áhorfenda,slíkur er fjöldinn sem fylgist með honum á mótum.

 

Vonandi getum við haft hann sem lengst! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 16:48:39 / grimurl

Titleist 905 R

Var að fá nokkur stykki af Titleist 905R drævernum.

Fór strax að prófa þennan dræver og var mjög ánægður með hann.

Mun öruggari með honum en eldri gerðum frá Titleist og þægilega dempað hljóð,enginn smellur eða hávaði þegar kylfan hittir boltann.

Aldila skaftið gefur lægra boltaflug en Graphite Design + skaftið.

Er að slá örlítið lengra með honum en 905T sem ég hef verið að nota undanfarið.


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 17:12:51 / grimurl

Nýkomið.

Ég hef fengið ýmislegt nýtt undanfarið að utan,til dæmis:

Hálfvitar frá Taylor Made,Ben Hogan,Mizuno,Ping G5,Titleist.

Brautartré;Taylor Made R7 Steel ,Ping G2 ,Mizuno F-50,King Cobra F-Speed.

Driverar frá Cleveland,Taylor Made.

Járnasett frá King Cobra 3100,3400,Tour Edge Bazooka,Titleist 704 og 804 og Taylor Made Rac TP og Mizuno MP-30 og MP-33

Skó frá Adidas-360 Tour.


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 17:54:28 / grimurl

Haustútsala-Uppboð !

Það verður tilboðs stemming fram að 1.október.
Gerið tilboð í þær vörur sem ykkur líst á hér á vefnum og gerið góð kaup!

Sendið mér tölvupóst á grimurl@simnet.is og hvaða vöru óskað er eftir og bjóddu í hana!

Sérstaklega hagstætt verð á eldri og notuðum búnaði.

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 21:03:20 / grimurl

Kominn á Selfoss

Nú er ég fluttur á Selfoss og er að koma mér fyrir.
Ég bý á Spóarimi 2 .


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 21:21:03 / grimurl

Styttist í flutninga-Bílskúrssala!

Eins og allir vita er ég að flytja á Selfoss innan tíðar.
Nánar tiltekið er gert ráð fyrir því að gámurinn með búslóðinni-og dótinu úr golfskúrnum- fari suður 30. maí n.k.
Vil ég því hvetja Vestfirðinga til að kíkja í skúrinn og gera góð kaup og eins að leysa út inneignarvinninga.
Það er alltaf möguleiki að prútta um verð!

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 21:14:03 / grimurl

200 þúsund heimsóknir!

Þessi síða var opnuð 27. janúar 2004 og í dag, 11. maí 2006 kom gestur númer  200.000 á síðuna!!



» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 11:05:32 / grimurl

Kominn heim!

Þá erum við komnir heim eftir frábæra ferð til Islantilla á Spáni.

Þessi ferð er strax farin að skila sér, því Orri vann 1. verðlaun í Opna Carlsberg mótinu í Leirunni á 43 punktum-Til hamingju Orri!

Einnig urðu gellurnar Lilja og Þyrí sem voru með okkur úti í 1. og 3. sæti með forgjöf í 1.maí mótinu á Hellu.

Nú er sumarið á næsta leiti og við ætlum allir að bæta okkur í sumar:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 21:45:43 / grimurl

Islantilla á Spáni!!!

Á morgun fer ég suður á Selfoss og eyði þar páskunum í nýja húsinu okkar við að standsetja áður en við flytjum þangað.

Svo á 18 apríl-þriðja í páskum- fer gengið; það svarta og það hvíta,í þessa árlegu golfferð til Islantilla á Spáni.
Það er ekki laust við að maður sé orðinn spenntur að spila golf á iðagrænum velli í 25° hita:)

Þannig að ég verð ekki við í Golfskúrnum frá 13-28 apríl.
Hinsvegar er hægt að senda mér tölvupóst,ég er alltaf í sambandi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 11:21:13 / grimurl

Original

Af gefnu tilefni skal það upplýst að allar vörur frá mér eru original  vörur frá viðkomandi framleiðendum.

Engar eftirlíkingar,klónar eða þess háttar frá Kína.

Hef orðið var við að sumir eru farnir að selja hér á landi t.d. Callaway X-18 sem er merkt sem Callaway og lítur við fyrstu sýn út fyrir að vera original,en er langt frá að vera sambærilegt að gæðum og alvöru Callaway.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 21:57:35 / grimurl

Pælingar um Taylor Made R7 dræver.

Nú hefur Taylor Made sett á markað nýjan R7 dræver á markað sem heitir R7 425

Helsta breyting er 25cc stærri haus,þynnri veggir, en það sem hugsanlega skiptir mestu máli er að stilliskrúfurnar eru öðruvísi staðsettar en á fyrirrennara sínum,R7 Quad.

Á þessum nýja eru aftari skrúfur með meira bil hvor frá annari.

Þá datt mér í hug R5 driverinn,sem kom á eftir R7. sjá mynd:

Þarna er R7 og R5 hlið við hlið og má glögglega sjá að nýji R7-425 fer milliveginn milli R7 og R5.

Einnig má geta þess að R7 er 400cc og R5 er 450cc.

Að mínu mati,eftir að hafa notað bæði R5 og R7, er Taylor Made líklega komin með hinn fullkomna driver í þessum nýja R7-425.

R5 er að fyrigefa meira en R7 en er að sama skapi höggstyttri en R7.

Allar þessar breytingar sem eru í nýja drævernum virðast BÆÐI gera hann högglengri og fyrirgefandi.

p.s. þetta eru mínar pælingar-byggðar á minni reynslu......

ps.ps. Get fengið þennan á viku.Sérpantanir eingöngu.Verð er um 38.000


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 14:54:21 / grimurl

Myndir streyma inn!

Nú er ég kominn með myndirnar á nýjan server og eru þær nú hver á fætur annari að skila sér á réttan stað:)

Takk fyrir þolinmæðina!

Svarta og Hvíta gengið á Islantilla 2005:

Svarta gengið er í hvítum bolum og Hvíta gengið í svörtum bolum.

Fremri röð: Jón Steinar-Rögnvaldur-Guðbjartur-Jói-Örnólfur og Bjarni Pétur.

Aftari röð: Grímur-Svenni-Smári-Nonni-Baldur-Olli


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 17:50:44 / grimurl

Myndir koma ekki upp!

Jæja, þá er ég kominn með svar frá Shutterfly.com sem geymir myndirnar mínar.

Niðurstaðan er sú að það er ekki lengur hægt að nota þennan server fyrir myndir á bloggsíðum.Þeir hafa lokað fyrir aðgang að myndum,nema það sé farið í gegnum heimasíðu þeirra.:cry:

Þannig að núna blasir við rosa vinna við að koma myndum inn á annan server og linka það við viðeigandi hluti.

Í millitíðinni getið þið sent mér póst og ég get sent myndir í tölvupósti.

Vonast til að þetta verði komið í gegn sem fyrst-sýnið biðlund:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 20:00:42 / grimurl

Myndir koma ekki upp!

Það er einhver böggur hjá blog.central með myndir núna,svo það getur verið að myndir koma ekki upp.
Það er verið að vinna í þessu.

Einnig hefur verið bætt inn aðgangskóða sem þarf að slá inn ef menn vilja koma með komment.
Þetta er einnig ekki að virka,svo vinsamlegast sýnið blog.central biðlund.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5